leitið og þér munið finna

Hleður...

þriðjudagur, apríl 13, 2010

Dagurinn í dag

Núna er kominn sumartími í Stokkhólmi og fleiri löndum sem hafa þann lúxus að kunna að breyta klukkunum sínum þegar við á. Það er reyndar svolítið síðan, en ég hef bara ekki haft það í mér síðustu daga eða vikur að skrifa eitthvað um það.
Mér finnst sumartíminn góður. Allt í einu er orðið bjart frameftir öllu og maður er ekki í endalausu sleni á kvöldin.
Eini gallinn við þetta er að nú er ég tveimur tímum á eftir Íslandi. Þannig að þegar klukkan er um átta á Íslandi og allir að fara að tengja sig á skæpið, er klukkan tíu hjá mér og ég farin að spá í að loka tölvunni. Þetta gerir það að verkum að ég hitti aldrei neinn á skæp og tala því alveg voðalega lítið í símann/tölvuna.

Ég ætla því að reyna að vera duglegri að blogga, svo fólk viti hvað ég er að gera.
Í dag var sól. Ég sá maura og feitar humlur. Ég drakk kaffi úti. Ég fékk smá handleiðslu hjá handleiðaranum mínum (handledning hos handledaren). Ég borðaði tvö steikt egg og salat í kvöldmatinn. Það var gott.

föstudagur, mars 26, 2010

Tilviljanir?

Hringdi í LÍN í dag. Var pínu kvíðin, því fyrir ári síðan neyddist ég til að hringja útaf sama efni, þ.e. útborgun lána fyrir haustönn. Ég fékk þá mikla skömm í hattinn fyrir að ég hefði nú átt að vera löngu búin að senda þetta (staðfestingu á námsárangri) til þeirra og þau gætu ekki tekið ábyrgð á því. Ég var nú ekkert að stressa mig á að fá þetta útborgað, bara að athuga hvort þau hefðu ekki örugglega fengið gögnin send. Þjónustufulltrúinn sagði þetta alveg típískt fyrir námsmenn erlendis að senda inn árangur á öllum tímum svo erfiðara væri fyrir þá hjá LÍN að afgreiða allt á sama tíma. Ég var pínu skelkuð eftir þetta viðmót og hef því reynt að hafa sem allra minnstu samskipti við þau.
Ég hringdi svo í dag aftur til að athuga hvort þau hefðu ekki örugglega fengið faxið frá mér í gær. Ég var búin að búa mig undir að vera ofsalega ákveðin og hörð og var með ræðu undirbúna ef ég fengi yfir mig alla streytu lífsins frá þjónustufulltrúanum. Í staðinn svaraði glaðleg rödd og sagði mér að þau hefðu mótekið einingarnar og allt væri í himnalagi. Sagði einnig að það væri svo frábært að fá námsáranginn sendan svona dreift yfir önnina, en það væri nú samt voða gaman í byrjun ársins þegar allar einingarnar væru að streyma inn og mikið að gera í vinnunni.
Ég var orðlaus. Gat ekki komið út úr mér einu aukateknu orði.
Það kom svo í ljós að það hefði ekki verið stofnað fyrir mig nýtt skuldabréf, eftir einhverja lagabreytingu á Alþingi (sem ég vissi ekki um). Þá hélt ég að ég fengi nú að heyra það fyrir að hafa aldrei minnt á að fá nýtt skuldabréf. En nei, konan sagði þetta klaufaskap af sjóðnum og bað mig innilega afsökunnar, hún skildi senda það hið snarasta til mömmu minnar sem gæti undirritað og sent bréfið til baka, svo ég fengi nú lánin mín greidd út fyrir páska. Ég var kölluð "elskan" í sífellu og svo endaði samtalið á ég mér voru boðnir gleðilegir páskar.

Nú spyr ég: hvað er í gangi á Íslandi? Eldgos, bruni í miðborginni, börn fá ekki að fara í ljós lengur og nú má enginn dansa berrassaður og svo fær maður viðkunnaleg viðmót hjá LÍN. Er þetta tilviljun?

föstudagur, febrúar 05, 2010

Svona af því að ég er stödd á bókasafninu...

...og að lesa námsefni, þá langar mig að skrifa örfáar línur. Er búin að skoða allt á feisbúkk og lesa smá Kristján Eldjárn og sitthvað fleira. Núna ætla ég að veita Blogger smá athygli.
Er líka að spá í að taka til í tenglalistanum mínum. Fólk bloggar ekki lengur. Það er ekki í tísku. Hér í Svíþjóð eru bloggarar ennþá pínu í tísku. Það eru til blogg verðlaun og fólk verður pínu upp með sér ef það sér einhvern frægan bloggara úti á götu, en hneikslast þó um leið, því svona bloggarar eru svo halló.

Skólamál eru voða mikið hangandi í loftinu. Ég er búin með alla kúrsa og er því bara að skrifa núna. Það er rosalega óþægilegt þar sem ég þarf aldrei að mæta neitt og ræð tíma mínum alveg sjálf. Ég er með engan sjálfsaga og minna til svo janúari, vini mínum tókst bara að læðast í burtu frá mér...frekar vandræðalegt, en febrúar fer ekki fet...hence the bókasafn. Ég verð að klára þessa mastersgráðu í vor og finna mér vinnu. Maður veit ekkert hvernig þessi kreppa fer með fornleifarannsóknir og atómgleipnimælingar (of töff orð), en ekki dugir að skæla Sigríður mín.

Óskar ákvað að gefa mér mjög snemmbúna afmælisgjöf þetta árið. Ég var búin tala svo mikið um að kaupa mér skauta að hann ákvað bara að splæsa þeim á mig. Ég fór og mátaði og fann mér ágætt par í Intersport. Af því að það gekk eitthvað brösulega síðast, ákvað ég að splæsa á mig hnjáhlífum líka...held að það hafi verið góð fjárfesting. Ætti eiginlega að finna mér hjálm líka.
Við Gugga kíktum í Kungsträdgården í gær og prufuðum skautana og það gekk bara ágætlega. Ég fór ofur varlega og var ekki töff, en kannski eftir nokkur skipti næ ég að þjálfa það eitthvað upp.
Tek þá með mér myndavél, svo fólk geti nú dáðst að mér.

fimmtudagur, janúar 21, 2010

Myndir frá nóv, des og jan.

http://picasaweb.google.com/ingahlin

Var að setja inn 3 ný albúm. Nóvember, desember og janúar. Var så goda!!

föstudagur, janúar 15, 2010

Tilkynningaskyldan...

Ég er löngu komin heim frá Köben! Langt síðan!
Fórum til Skánar þann 3. janúar og vorum þar að kúldrast í kuldanum til 7.janúar. Þá tók ég lestina til Stokkhólms. Ég varð svolítið hissa á tilfinningunni sem ég fékk þegar ég kom loksins (eftir klukkutíma seinkunn á lestinni) til Stokkó. Það var svona: "aaahhhh...komin heeeeiiiim". Voða undarlegt en smá notalegt.

Óskar renndi svo í hlað á InterCity lestinni sinni á afmælisdaginn, 12.
Við erum eitthvað að þykjast vera voða dugleg að læra og gera hluti, en erum í raun og veru kannski ekkert svo dugleg. Drekkum bara rauðvín úr fernu og erum frekar sjoppuleg. Ekki segja samt neinum, þetta er rosa leindó!

Verð svo að fara að setja inn myndir. Þetta er samt það sama og með lærdóminn...er bara ekki svo dugleg.
Það er samt alveg óóótrúlegt að sjá Stokkhólm í klakaböndum. Þið fáið kannski að sjá bráðum.

sunnudagur, desember 20, 2009

Kóngsins köbenhavn!

Það gekk allt eins og í sögu í gær, þrátt fyrir ótrúlegt fannfergi! Haldfangið á töskunni minni er bilað þannig að ég þurfti að dragslast með töskuna á eftir mér, safnandi risa snjósköflum á undan henni...þetta hefur verið frekar fyndin sjón!

En ég er allavega komin til Kaupmannahafnar. Þar biðu mín Óskar, Gummi og Gulla. Við erum með lánað hús yfir hátíðarnar...og pössum í leiðinni litla Silky terrier tík. Hún er agalegur vælukjói, en samt pínu skemmtileg.


Svo er hún alveg agalega snoppufríð og alger knúsikelling


Ég er svo búin að sitja sveitt við að skrifa jólakort, sem fara í póst á morgun...koma semsagt til Íslands einhverntíma í kringum nýárið!

föstudagur, desember 18, 2009

Saenskt lyklabord

Hér vantar nokkra íslenska stafi á lyklabordid svo thid verdid ad vanda lesturinn!

Ég er í skólanum ad keyra í gegn sídustu greiningarnar mínar fyrir jól. Thá á ég lítid annad eftir en ad skrifa thessa blessudu ritgerd mína. Thad verdur pínu notalegt ad losna vid alla thessa sýruvinnu...thótt thad sé ótrúlega töff ad vera í hvítum slopp ad vinna med stórhaettulegar sýrur allan daginn!! Thad verdur bara gaman ad fara ad sjá einhverjar nidurstödur af thessari vinnu minni.

Hef verid í vandraedum med íslenskt heiti yfir greiningarnar sem ég geri og einnig taekid sem ég nota.
Komst ad thví í vor ad thetta eru alls ekki sporefni sem ég er ad greina heldur snefilefni...thad meikadi miklu meiri sens. Taekid kallast á ensku atomabsorptionspectrophotometer og er stytt sem AAS. Tungubrjótur? Fann á heimasídu Nýsköpunarmidstödvar Íslands ad thetta merkilega taeki heitir uppá íslensku atómgleypnimaelir. Mun betra ekki satt?

Í kvöld aetla ég ad pakka mínu hafurtaski saman, thví á morgun fer ég sudur til Köben. Er komin med hús og hund og fjölskyldu thar sem bídur mín á hovedbanhof um midnaetti annad kvöld. Hyggeligt!

Startadi í vikunni alveg nýrri jólahefd sem ég vonast til ad geta fylgt eftir naestu árin.
Jólasíld!
Hér er enginn madur med mönnum nema hann/hún marineri sína eigin síld um jólin. Ég gat ekki látid í minnipokann og er nú búin ad legga einhver reidinnar bísn af síld í Tequila/lime marineringu.
Thetta var vodalega lítid mál. Gaeti hins vegar ordid svolítid meira mál á Íslandi...kannski erfitt ad verda sé út um inläggnings sill...eller hur?
Ef hún heppnast vel, set ég kannski uppskriftina hingad inn.

Heyrumst frá Köben naest :)

sunnudagur, desember 13, 2009

Gleðilega Lúsíu!

miðvikudagur, nóvember 25, 2009

Er tíminn kominn??

Voruði farin að bíða?? Já var það ekki...

Ég er ekki alveg að fíla Nóvember...það er klárlega ekki uppáhalds mánuðurinn minn. Svo finnst mér janúar og febrúar ekkert spes heldur. Væri alveg til í að leggjast í hýði þessa mánuði. Vakna rétt til að halda uppá jólin og sofna svo aftur. Það er til leikkona í henni Ameríku sem heitir January Jones. Foreldrum hennar hefur örugglega leiðst þetta barn voðalega mikið. En annars er nú kominn 25. nóvember núna svo þetta fer allt að skána...desember er ætíð upplífgandi.

Svo er svo mikið í kalenderinu mínu (já ég bý í Svíþjóð og þarf því að eiga kalender) að ég hef engan tíma til að láta mér leiðast.
Ég var í Lundi og Köben um síðustu helgi og skemmti mér konunglega. Enda ekki annað hægt með gestgjafana á þeim bæjunum.
Nokkrar fósturlandsins freyjur ætla að vera hér í Stokkhólmi um helgina og ég ætla að stússast eitthvað með þeim. Sjá t.d. The Sonics (einhverjir gamlir refir) á tónleikum. Svo ætlum við að kíkja á Salvador Dali sýningu svo fátt eitt sé nefnt.
Svo ætla ég á ballettsýningu (Hnotubrjótinn) í sænsku óperunni í næstu viku. Svo byrjar jólaundirbúningur og verkefnaskrif. Þið sjáið sumsé núna nauðsynina í því að eiga gott kalender...það er hverrar krónu virði!

Ég lofa að skrifa meira fljótlega. Á eftir að segja frá jarðvegssýnavinnunni minni sem ég er farin að sjá fyrir endann á og mörgu öðru...það má líka alveg minna mig á það hér í kommentunum...

þriðjudagur, nóvember 03, 2009

Bakarameistari!

Ég er klaufi við bakstur. Það er eitthvað með mig og mæliskeiðar sem á ekki saman og svo er eins og ég missi allt common sense þegar ég fer að hræra deig.
Ég kann alveg að baka nokkrar uppskriftir, en þá liggja yfirleitt nokkrar misheppnaðar tilraunir að baki!

Í kvöld var ég með agalega sæta tönn. Svo hræðilega að ég var farin að hugsa um að stökkva út í tunnel og fara niðrá söder...bara til að fá mér gómsæta sneið af kladdköku á Muggen. Hugsaði þetta í smá tíma og komst svo að þeirri niðurstöðu að það væri miklu sniðugra að finna bara uppskrift að einfaldrii kladdköku, sem er sænska, einfalda útgáfan af franskri súkkulaðiköku og baka!
Þegar ég var búin að hræra þetta deig saman (bara fáránlegt deig...eiginlega bara smjör, sykur og kakó) fattaði ég það að ég ætti ekkert kökuform. Þá hefðu flestir ákveðið að fara og finna sér kökuform því annað væri ómögulegt. En ekki ég ónei. Mér fannst alveg bráðupplagt að smyrja bara deiginu beint á bökunarpappír...svona eins og mamma gerir við marensinn...það hlýtur að virka! Ég meina deigið var ofsa þykkt og allt!
Eftir korter ákvað ég að kíkja í ofninn :o/ það sem átti að vera smurt yfir 1/4 af bökunarplötu var búið að dreifa sér yfir nánast alla plötuna!! Örþunnn kladdkakan var svo tekin úr ofninum og látin kólna. Núna sit ég og hristist af sykursjokki.

Sofna ekki í bráð og sætu tönninni reddað!

þriðjudagur, október 27, 2009

Mánuði síðar...

Þegar svona langt líður milli færslna verður maður hálfpartinn feiminn við að skrá sig inn og skrifa eitthvað. Þarf samt ekki að skrifa allt það sem búið er að gerast í hárnákvæmri tímalínu...það væri einum of.
Í stuttu máli fór ég til Lundar í heimsókn til Óskars, fór til Västra Öster Götalands og svo kom Óskar í heimsókn um síðustu helgi. Svo er það nottla skólinn. Var að skila af mér feltkúrsinum í síðustu viku og get nú loks frjálst um höfuð strokið.
Myndir koma inn fyrr en varir.

Ég lét loksins verða af því að kaupa mér myndavél. Er búin að taka myndir á 2mp myndavelina á símanum mínum síðustu 2 árin og allt í einu fékk ég nóg. Ég var svo ógurlega ánægð með Ricoh vélina sem ég átti þá að ég ákvað að kaupa aðra: Ricoh R10 að þessu sinni...bronslita. Og nú skal taka myndir!!

(sjáið bara hvað hún er flink)

Við erum búin að ákveða að eyða jólunum í útlöndum og er Köben einn heitasti jólaleyfisdvalarstaðurinn norðan Antartica um þessar mundir. Þar er allt sem hugurinn girnist: Tívolí, Candy floss og villisvínasteikur, svo ekki sé minnst á leverpostej og hvidöl (hér fæst ekkert hvidöl)...svona það sem manni langar mest í á jólum. Foreldrar Óskars ætla að öllum líkindum að vera með okkur og okkur vantar því 3ja herbergja íbúð til leigu í Köben yfir jólin. Spread the word!

Ætla núna að drífa inn myndir...fylgist með!

*Öppdeit - Myndir komnar inn*

sunnudagur, september 27, 2009

NÚNA er uppgraftarvertíð lokið!

Núna er ég hætt að grafa. Í bili. Ætla samt ekki að grafa upp nokkurn skapaðan hlut í nokkra mánuði. Hef enga lyst á útiveru, pikknikki eða nokkur sem krefst þess af mér að ég sé úti undir berum himni lengur en í klukkutíma. Fimm mánuðir af árinu nægja alveg fyrir mig. Fer aftur út í vor!

Uppgröfturinn endaði þó á mjög skemmtilegum nótum! Fundum gröf sem við Gugga fengum að hreinsa fram. Enda alveg grænar í þeim efnum. Svo ákvað uppgraftarstjórinn að fagna með að bjóða okkur í búblí. Settumst á veitingastað og byrjuðum á einni flösku af ofsagóðu freyðivíni. Þegar við fórum þaðan, nokkrum tímum seinna hafði þessi flaska óvart breyst í rúma flösku á mann...svo það tók svolítið á að vakna daginn eftir til að fara og fylla uppí holuna. Note to self: ekki drekka búblí kvöldið fyrir síðasta uppgraftardag...

Er búin að setja inn myndir í Myndir 1...ágúst og september. Þar ber að líta m.a. myndir úr uppgreftinum.

sunnudagur, september 20, 2009

Svínakjöt...fullt af því!

Veðurblíðan heldur áfram í Stokkhólmi. Hún má alveg halda áfram eitthvað frameftir vetri fyrir mér...ég þarf engan vetur! Það verður samt gaman að fara á skauta aftur...með hnjáhlífar í þetta skiptið.

Ég gerði þau svakalegu innkaup í dag að versla mér tvö og hálft kóló af svínakótilettum! Já tvö og hálft kíló í svona risastórum fjölskyldupakkningum, sérhönnuðum fyrir fólk sem á 7 börn og risastóran ísskáp. Ég á eina hillu í ísskáp og eina hillu í frysti. En ég varð bara að nýta mér þetta svakalega tilboð - 39.90 SEK/kg. Það er alltaf bara kjúklingur sem er svona ódýr og ég er bara ekkert mikið fyrir hann þökk sé Tveim Húsvögnum.
Ég skipti þessu bara niður í hæfilega parta og setti í frystinn. Er ég ekki hagsýn húsmóðir? Það finnst mér! Núna á ég líka svínakjöt út árið :)

Svo eru komnar í búðir núna nýuppteknar rauðbeður. Langar alveg agalega að gera mér súpu...er einhver með góða uppskrift að rauðbeðusúpu? Ég skal lofa að borða hana ekki hvítklædd :)

Ég hugsa oft um það að blogga meira, nóg sé ég af nýju stöffi daglega til að skaffa mér bloggfærslur, en þegar ég kem heim úr uppgrefti orka ég bara hreinlega ekki neitt. Tek gömlu konuna á þetta og er yfirleitt sofnuð uppúr tíu. Ég er samt búin að finna voðalega fína hluti í þessum uppgrefti eins og örvarodd, fullt af fínu keramiki, nánast heilan mínípott, litlu stærri en fingurbjörg og núna eru farnir að koma í ljós einhverjir strúktúrar. Ég sagði í síðustu færslu að þetta væru 2-3000 ára gamlar minjar. Ég var alveg way off því þetta eru 5000 ára gamlar minjar sem þarna liggja. Ótrúlegt alveg!

föstudagur, september 04, 2009

Gæðablóð á hlaðborði

Það er kominn september og hitinn fer lækkandi í samræmi við það...15°C er bara ekki nógu gott. Skólinn er byrjaður og það fyrsta á dagskrá er feltkúrs allan septembermánuð. Tilgangur minn í þessum kúrs virðist helst liggja í því að sjá mýflugum og slíkum skepnum fyrir næringu svo þær geti nú eignast sín börn og dáið svo í friði og ró. Á meðan þær liggja og sjúga úr ystu húðlögum mínum (helst á enni og augnlokum því það er svo smart) það gæðablóð sem þar er að finna hef ég tækifæri til að kynna mér steinaldarminjar og rannsóknir á þeim.

Korsnäs heitir staðurinn og var uppgötvaður um 1930. Hann tilheyrir pitted-ware culture og þess konar keramik finnst einmitt þarna í massavís (við hreinlega höfum ekki undan að skrifa fundanr.). Þarna er líka að finna grafir, dýra og mannabein á víð og dreif og einhverjar leirfígúrur. En enga strúktúra...dularfullur staður. Ég veit ekkert hvað er í gangi. Við erum samt að læra um þetta allt saman.
Ég hef alltaf haldið því fram að steinöld heilli mig ekki vitundar-agnar-ögn en það er eitthvað heillandi við þá tilhugsun að maður sé að moka einhverju upp sem var síðast notað fyrir ca 2000-3000 árum. Þetta er líka svolítið eins og byrja alveg uppá nýtt að grafa. Í fyrsta lagi erum við að nota aðferðir sem ég hef ekki notað áður (single context en samt einhvernveginn í plani ef þið hafið áhuga) og svo er gripaflóran eitthvað sem ég hef ekki hundsvit á og þarf að spyrja um hvern einasta stein sem ég finn, leiðbeinandanum örugglega til mikillar gleði. Svolítið eins og þegar við vorum að fylla gripaföturnar af rótum við sigtunina á Hólum!

Um leið og við lyftum grasrótinni fóru að koma keramik brot. Þetta var fyrsta brotið mitt:

Frekar kúl...

Við höfum svaka öflugt sigti til afnota...örugglega það notendavænsta sem ég hef notað:

og annað ekki svo öflugt...en það dugar fínt:


Þetta er voða gaman...fyrir utan það að ég þarf að fara á fætur kl 6...þeir sem til þekkja ættu að átta sig á því að það getur reynt á.

laugardagur, ágúst 29, 2009

Myndir!

4 ný albúm á http://picasaweb.google.com/ingahlin

Apríl, maí, júní och júlí...njótið vel.