Þá er bara að bretta upp ermar og flytja út úr þessari íbúð því eftir rúma viku fer ég út! Óskar fer svo tæpri viku síðar.
Stuði stuð!
Það var hátíðleg stund á bökkum Þjórsár í lok dags þar sem vinnufélagarnir söfnuðust saman í hring og hrópuðu ferfalt húrra fyrir mér og grétu svo hástöfum af sorg yfir brottför minni. Ég skil þau vel...alltaf erfitt að kveðja. En ég kem aftur...ég kem alltaf aftur.
Á leiðinni í bæinn stoppuðum við á Selfossi til að næra okkur aðeins. Staðurinn "Grænt og Grillað eða "Greens on Wheels" (sem er nú ekki merkilegri en lítill matsöluvagn á Hafnarplaninu) varð fyrir valinu og við urðum sko ekki fyrir vonbrigðum! Æðislegt spínat buff, gróft pasta með ólífum og parmesan, æðislegt brauð og hummus og ferskt salat með iceberg, eplum, vatnsmelónu og myntu. Svo var einhver rosa góð jógúrtsósa með þessu. Amminamminamm!!! Allt svo ofsalega heilt og gott!
Fyrir vel útilátinn skammt af þessum góða mat voru rukkaðar 1290 kr sem mér finnst bara skid och ingen ting fyrir svona virkilega góðan mat.
Mæli með fyrir fólk á leið um Selfoss (og að sjálfsögðu fólk búsett á svæðinu) að láta þetta ekki framhjá sér fara...allir á "Greens on Wheels"!!
föstudagur, ágúst 14, 2009
Subscribe to:
Post Comments (Atom)

1 afskipti:
Hmm... ég hef aldrei heyrt um þennan stað. Er þetta svona nýi pullarinn, bara miklu hollari? ;) Góða ferð kæra vinkona og hafðu það gott í Svíalandi!
Sendu inn athugasemd