leitið og þér munið finna

Hleður...

þriðjudagur, nóvember 03, 2009

Bakarameistari!

Ég er klaufi við bakstur. Það er eitthvað með mig og mæliskeiðar sem á ekki saman og svo er eins og ég missi allt common sense þegar ég fer að hræra deig.
Ég kann alveg að baka nokkrar uppskriftir, en þá liggja yfirleitt nokkrar misheppnaðar tilraunir að baki!

Í kvöld var ég með agalega sæta tönn. Svo hræðilega að ég var farin að hugsa um að stökkva út í tunnel og fara niðrá söder...bara til að fá mér gómsæta sneið af kladdköku á Muggen. Hugsaði þetta í smá tíma og komst svo að þeirri niðurstöðu að það væri miklu sniðugra að finna bara uppskrift að einfaldrii kladdköku, sem er sænska, einfalda útgáfan af franskri súkkulaðiköku og baka!
Þegar ég var búin að hræra þetta deig saman (bara fáránlegt deig...eiginlega bara smjör, sykur og kakó) fattaði ég það að ég ætti ekkert kökuform. Þá hefðu flestir ákveðið að fara og finna sér kökuform því annað væri ómögulegt. En ekki ég ónei. Mér fannst alveg bráðupplagt að smyrja bara deiginu beint á bökunarpappír...svona eins og mamma gerir við marensinn...það hlýtur að virka! Ég meina deigið var ofsa þykkt og allt!
Eftir korter ákvað ég að kíkja í ofninn :o/ það sem átti að vera smurt yfir 1/4 af bökunarplötu var búið að dreifa sér yfir nánast alla plötuna!! Örþunnn kladdkakan var svo tekin úr ofninum og látin kólna. Núna sit ég og hristist af sykursjokki.

Sofna ekki í bráð og sætu tönninni reddað!

2 afskipti:

Óskar L. sagði...

Ummmm.... langar í súkkulaðiköku!

Ása Valdís sagði...

Flott hjá þér.. Mig langar líka í súkkulaðiköku... Hef samt aldrei gerst svo fræg að búa svona köku til.. Geri yfirleitt bara Betty Crocker.. ;o)