Voruði farin að bíða?? Já var það ekki...
Ég er ekki alveg að fíla Nóvember...það er klárlega ekki uppáhalds mánuðurinn minn. Svo finnst mér janúar og febrúar ekkert spes heldur. Væri alveg til í að leggjast í hýði þessa mánuði. Vakna rétt til að halda uppá jólin og sofna svo aftur. Það er til leikkona í henni Ameríku sem heitir January Jones. Foreldrum hennar hefur örugglega leiðst þetta barn voðalega mikið. En annars er nú kominn 25. nóvember núna svo þetta fer allt að skána...desember er ætíð upplífgandi.
Svo er svo mikið í kalenderinu mínu (já ég bý í Svíþjóð og þarf því að eiga kalender) að ég hef engan tíma til að láta mér leiðast.
Ég var í Lundi og Köben um síðustu helgi og skemmti mér konunglega. Enda ekki annað hægt með gestgjafana á þeim bæjunum.
Nokkrar fósturlandsins freyjur ætla að vera hér í Stokkhólmi um helgina og ég ætla að stússast eitthvað með þeim. Sjá t.d. The Sonics (einhverjir gamlir refir) á tónleikum. Svo ætlum við að kíkja á Salvador Dali sýningu svo fátt eitt sé nefnt.
Svo ætla ég á ballettsýningu (Hnotubrjótinn) í sænsku óperunni í næstu viku. Svo byrjar jólaundirbúningur og verkefnaskrif. Þið sjáið sumsé núna nauðsynina í því að eiga gott kalender...það er hverrar krónu virði!
Ég lofa að skrifa meira fljótlega. Á eftir að segja frá jarðvegssýnavinnunni minni sem ég er farin að sjá fyrir endann á og mörgu öðru...það má líka alveg minna mig á það hér í kommentunum...
miðvikudagur, nóvember 25, 2009
Subscribe to:
Post Comments (Atom)

1 afskipti:
Ohhh.. fórstu á hnotubrjótinn? Vá hvað ég væri til í að sjá það live - hef séð billjón upptökur af þessum ballett!! Finnst hann alltaf vera svo mikið jóla ;)
bestu kveðjur,
Elín fornleifafræðingur
Sendu inn athugasemd